|
11.10.2006
|
|
|
|
|
|
Hér fer á eftir þýðing Guðna Tómassonar á viðtali sem ég tók fyrir Víðsjá á Rás 1.
Bandaríski kvikmyndagagnrýnandinn Gerald Peary var staddur hér á landi á dögunum vegna Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar sem nú er yfirstaðin. Peary, sem hefur starfað sem kvikmyndagagnrýandi fyrir fjölda bandarískra tímarita, hefur á undanförnum árum unnnið að heimildarmynd um bandaríska kvikmyndagagnrýni í gegnum tíðina ásamt konu sinni, kvikmyndaframleiðandanum Amy Geller. Sigríður Pétursdóttir ræddi við hjónin fyrir Víðsjá.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
5.10.2006
|
|
|
|
|
|
Ég náði tali af snillingnum Atom Egoyan sem er hér staddur vegna kvikmyndahátíðarinnar. Haukur Ingvarsson þýddi viðtalið fyrir Víðsjá.
Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands afhenti leikstjóranum Atom Egoyan verðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fyrir framúrskarandi listræna kvikmyndasýn árið 2006 í gær. Egoyan er af armensku bergi brotinn, fæddur í Egyptalandi árið 1960 en hefur búið í Kanada bróðurpart lífs síns. Mynd Egoyan Sweet Hereafter var tilnefnd til óskarsverðlauna en myndin Ararat frá 2002 vakti ekki síður athygli en hún er fyrsta bíómyndin þar sem fjallað er um þjóðarmorð á Armenum.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
5.10.2006
|
|
|
|
|
|
Eftirfarandi viðtal tók ég við Ray Winston föstudaginn 15. september. Guðni Tómasson þýddi fyrir Víðsjá.
Breski kvikmynda- og sjónvarpsleikarinn Ray Winston sem leikur eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni The Proposition (Tilboðið), sem nú er sýnd á Icelandfilmfestival kvikmyndahátíðinni í Reykjavík var staddur hér á landi á dögunum. Winston, sem fæddur er í Hackney hverfinu í London árið 1957, hefur leikið í fjöldamörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þar má nefna kvikmyndina Sexy Beast, þar sem hann lék aðalhlutverkið árið 2000 og sakamálaþættina Vincent þar sem nú er verið að sýna í Sjónvarpinu.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
1.9.2006
|
|
|
|
|
|
Bjólfskviða var frumsýnd í Háskólabíói og viðstaddur var Gerald Butler. Hér fer á eftir viðtal sem ég átti við leikarann, en Jórunn Sigurðardóttir þýddi fyrir Víðsjá.
Í gær hitti ég að máli aðalleikara Bjólfskviðu, Gerald Butler. Hann sagðist hafa dreymt um að vera leikari frá unga aldri, suðaði í mömmu sinni að ganga með sig milli manna sem réðu börn í hlutverk og fékk á endanum að leika Oliver Twist í samnefndum söngleik. Draumurinn um að leika var lífseigur og hann sótti leiklistarnámskeið og lék sem unglingur. Á tímabili lét hann þó skynsemina ráða og fór í lögfræði. En hvað varð þá til til þess að leiklistin varð ofaná.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
30.8.2006
|
|
|
|
|
|
Hér á eftir fer lengri útgáfa af viðtali sem ég átti við Juliu Sweeney og flutt var í Víðsjá í sumar, viku eftir viðtalinu við hana um kvikmyndaáhugann.
Julia Sweeney er virt gamanleikkona og hefur komið við sögu í sjónvarpsþáttum eins og Beðmálum í borginni og Aðþrengdum eiginkonum. Kvikmyndir sem hún hefur leikið í eru t.d. Pulp Fiction og Stuart litli. Þekktari er hún þó sem handritshöfundur, hefur skrifað fyrir fyrrnefndu sjónvarpsþáttaraðirnar og ennfremur einleiki sem hefur verið vel tekið. Julia var nýverið hér á landi og sýndi einleikinn Letting go of God á ráðstefnu um trúleysi.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|