|
12.2.2004
|
|
|
|
|
|
Eitt afkastamesta kvikmyndatónskáld á þessari öld var Berrnard Hermann. Hann var ennfremur mikill frumherji. Hann er í raun og veru maðurinn sem breytti kvikmyndatónlist úr hreinni og beinni bakgrunnstónlist í list sem hafði veruleg áhrif á hvernig fólk horfði á kvikmyndir, tónlistin sjálf sagði sögu ekki síður en myndirnar og lýsti gjarna sálarástandi persóna kvikmyndanna. Bernard Herman er maðurinn á bak við seiðmagnandi vindgnauðið, tónlistina sem byrjar “Citizen Kane”, skrækjandi fiðlurnar í “Psycho” og saxafóninn í “Taxi Driver” svo eitthvað sé nefnt.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
10.12.2003
|
|
|
|
|
|
Eftir að ég setti á Kviku brot úr Bíótónum frá því í september, sem fjallaði um liti og tónlist í kvikmyndinni Monsoon brúðkaupið, hafa nokkrir spurt mig að því hvers vegna ég setji ekki allan þáttinn inn. Að þeir vildu gjarna geta lesið líka um hin brúðkaupin í þættinum, það gríska, bandaríska, breska og ástralska. Hér með verð ég við þeirri ósk. Njótið vel!
|
|
|
Muriel giftir sig
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
6.11.2003
|
|
|
|
|
|
Mig langar til að benda á tónleika í kvöld sem verða alveg örugglega frábærir. Sænskir tónlistarmenn sem kalla sig “Fläskkvartetten” spila í Íslensku óperunni
klukkan hálf níu. Ég tók fyrst eftir þeim árið 1997, þegar ég sá kvikmyndina Tic Tac eftir Daniel Alfredson. Þeir sömdu tónlistina við þá kvikmynd. Hún er frumleg og seiðandi og eftir að ég gekk út úr kvikmyndahúsinu var ég ekki róleg fyrr en ég komst að því hvaða hljómlistarmenn þetta voru.
|
|
|
Tónlistarmennirnir
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
26.8.2003
|
|
|
|
|
|
Árið 2001 var frumsýnd kvikmyndin Monsoon brúðkaup eftir Mira Nair. Handritið skrifaði önnur ung kona, Sabrina Dhawan og báðar eru þær af Punjab fjölskyldum, fæddar og uppaldar í Nýju Delhi. Myndin einkennist af fögrum litum og tónlist og er veisla bæði fyrir augu og eyru. Monsoon brúðkaupið er ekki eiginleg Bollywood kvikmynd þó söngur, dans og litagleði minni á þessar sérstöku Indversku kvikmyndir sem nefndar hafa verið því nafni. Í Bollywood myndum er hljóðrásin yfirleitt ný, spiluð inn sérstaklega fyrir myndina og leikin í bakgrunni. Í Monsoon brúðkaupinu ákvað Mira Nair hins vegar að taka ýmiskonar tónlist frá Indlandi, klassísk lög, gömul rómantísk ástarlög og lög sem alltaf eru sungin við brúðkaup og fá svo Mychael Danna til að semja hljóðrás sem brú á milli.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
11.1.2003
|
|
|
|
|
|
Ákveðinn tónn, tregablandinn, ljúfur og húmoríkur í senn einkennir svo margar franskar myndir. Myndir eins og t.d. Betty Blue. Mynd sem sannarlega býr yfir þessum sérstaka franska sjarma er myndin Amelie sem sló í gegn á síðasta ári. Myndin fjallar eins og svo margar aðrar um ástina og hennar mörgu og skemmtilegu hliðar. Amelie er dulítið innhverf stúlka sem hefur hlotið sérkennilegt uppeldi. Hún fær vitrun og ákveður að tilgangur lífs hennar sé að hljálpa fólki að finna ástina og hvort annað.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|