|
2.2.2007
|
|
|
|
|
|
Fyrstu Óskarverðlaunin voru veitt þann 16. maí árið 1929, í tiltölulega látlausum hátíðarkvöldverð í Roosevelt hótelinu í Hollywood. Gestir voru 250 talsins og aðgangseyrir 10 dollarar. Spenna og glamúr einkenna Óskarsverðlaunaafhendinguna nú til dags, en það hefur ekki alltaf verið þannig. Fyrstu árin var vitað fyrir fram hverjir kæmu til með að fara heim með styttu, svo spennan í kringum afhendinguna var ekki mjög mikil.
Búið var að láta dagblöð vita hverjir væru hinir heppnu en þau sátu þó á sér og birtu ekki niðurstöður fyrr en að lokinni afhendingu. Það breyttist þó 1940, en þá birti Los Angeles Times lista yfir vinningshafa áður en gestir mættu til veislu.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
4.4.2006
|
|
|
|
|
|
Eftirfarandi er fyrirlestur sem ég flutti á Kynjadögum Listaháskólans í dag 4. apríl. Áður hafði ég haldið samsvarandi erindi á ensku við þjóðfræðideild H.Í.
Undanfarin ár hef ég oft leitt hugann að karlmannsímyndinni í íslenskum kvikmyndum. Hvar eru hetjurnar, úrræðagóðir, atkvæðamiklir og heiðarlegir menn? Frá upphafi hefur borið mest á andhetjum sem aðalpersónum í íslenskum kvikmyndum. Karlmönnum sem eru liðleskjur, margir hverjir óheiðarlegir, latir, sjálfselskir, halda fram hjá, eru oft á tíðum algjör kvikindi og ekkert á þá að treysta. Eða bara aumingjar með hor sem láta kellingar ráðskast með sig. Flestar eru þessar andhetjur frekar fráhrindandi en þó er nokkuð um andhetjur í íslenskum kvikmyndum sem maður fær samúð með og fer jafnvel að þykja vænt um. Besta dæmið er Nói blessaður albínói.
|
|
|
Íslenski draumurinn
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
17.3.2006
|
|
|
|
|
|
Kvikmyndahátíðin Hinsegin bíódagar hófst í gærkvöldi með sýningu á spænsku kvikmyndinni Bangsalingur. Allar sýningar hátíðarinnar verða í Regnboganum við Hverfisgötu og boðið er upp á mikið úrval nýrra og nýlegra kvikmynda sem vakið hafa athygli í austan hafs og vestan. Stjórnandi hátíðarinnar eru Hrafnhildur Gunnarsdóttir, en fjöldi fólks í hreyfingu samkynhneigðra kemur að undirbúningi hennar. Þeir sem hafa áhuga á að hlusta á spjall okkar Guðna Tómassonar í Víðsjá um hátíðina geta farið inn á www.ruv.is, smellt á 16. mars og fundið viðtalið. Það verður hægt að hlusta á það í tvær vikur. Einnig er hátíðin með frábæra heimasíðu þar sem sagt er frá myndunum. Slóðin er www.hinbio.org
|
|
|
Ferðalagið
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
18.2.2006
|
|
|
|
How the male is portrayed in Icelandic films
|
|
A year or two ago the film 101 Reykjavik by Baltasar, based on a book by Hallgrimur Helgason, was on TV. At the time I was writing about Sunday night films on TV and in the writing progress I had a thought about men in Icelandic films. The male characters in most Icelandic films always seem to be either a loser, a bastard, or even both. At first I thought that perhaps I only remembered the bad ones. It was more than possible that there were a lot of nice heroes in the films, I just couldn’t remember any at the moment.
|
|
|
101 Reykjavik
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
23.1.2006
|
|
|
|
|
|
Guðni Tómasson flutti góðan pistil í Víðsjá á dögunum. Hér á eftir fer það sem honum lá á hjarta.
Það fer að verða hægt að fara bíó þessa daganna, þ.e.a.s. hægt að fara í bíó utan við dagskrá kvikmyndahátíðanna. „Góðu og innihaldsríkari“ myndunum frá Hollywood verksmiðjunni sem rekur með golfstraumnum hingað upp að Íslands ströndum fer að fjölga um þetta leyti árs. Það er verðlaunamynda-vertíð sem nú hefst, eins og vanabundin vetrarvertíð á sjó þegar fiskurinn finnst. Hvatinn að þessum auknu gæðum í bandarískum kvikmyndum eru fyrst og fremst verðlaunahátíðir þar vestra þar sem gylltum styttum; gullnum hnöttum og gljáfægðum „óskurum“ er útdeilt til þeirra sem taldir eru hafa staðið upp úr í kvikmyndaframleiðslunni á árinu.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|