Síða 1 af 5  |   <<     >>


16.2.2007

Mexíkóskir leikstjórar og myndir

Kvikmyndagerð í Rómönsku Ameríku virðist vera í mikilli uppsveiflu. Að minnsta kosti fá myndir þaðan nú meiri dreifingu en áður þannig að við fáum tækifæri til að sjá þær. Nú er verið að sýna þrjár myndir í kvikmyndahúsum borgarinnar sem allar eiga rætur að rekja til Mexíkó, allt margverðlaunaðar myndir og standa vel undir því. Samtals hafa þær hlotið fjölda Golden Globe og BAFTA verðlauna og eru tilnefndar til Óskarsverðlauna. Þetta eru myndirnar Babel eftir Alejandro González Iñárritu, El Laberinto del Fauno eða Völundarhús Pans eftir Guillermo del Toro og Children of Men, Mannanna börn, eftir Alfonso Cuarón. Brasilísku leikstjórarnir Walter Salles, höfundur Central do Brasil og Mótorhjóladagbókanna og Fernando Meirelles sem gerði Borg Guðs og The Constant Gardener hafa líka verið áberandi undanfarin ár og ég gæti nefnt fleiri til sögunnar.

Alejandro González Iñárritu

 

Meira

 

10.4.2006

Vilgot Sjöman

Einn þekktasti kvikmyndagerðarmaður svía, Vilgot Sjöman, er látinn 81 árs að aldri. Hér á landi er Sjöman trúlega þekktastur fyrir hinar umdeildu myndir Ég er forvitin - gul (Jag är nyfiken – en film i gult) frá árinu 1967 og Ég er forvitin - blá (Jag är nyfiken - en film i blått) sem hann gerði ári síðar. Litirnir eru tilvísun í liti sænska fánans. Hann gerði reyndar fjölmargar myndir á ferlinum þó fæstar hafi ratað hingað. Einhverjir muna þó án efa eftir síðustu mynd hans, myndinni um Alfred Nobel frá 1995.

Vilgot Sjöman

 

Meira

 

16.2.2006

Velgengni Dags Kára

Dagur Kári fékk í byrjun mánaðarins verðlaun sem kennd eru við danska kvikmyndaskáldið Carl Th. Dreyer. Ég samgladdist Degi Kára, þetta er mikill heiður því Dreyer er einn besti kvikmyndagerðarmaður sem uppi hefur verið. Nýjasta mynd Dags Kára Voksne mennesker hefur sópað að sér verðlaunum víða um heim að undanförnu, skemmst er að minnast þess að myndin fékk aðalverðlaun á Gautaborgarhátíðinni. Hér á landi fannst mér myndin ekki fá eins mikla athygli og hún átti skilið þegar hún var sýnd, þó hún fengi reyndar slatta af Eddum. Í bíóannál mínum um síðustu áramót útnefndi ég Voksne mennesker sem vanmetnustu mynd síðasta árs. Ég var nefnilega mjög hrifin. Eftirfarandi skrifaði ég fyrir Víðsjá 30. maí síðastliðinn;

Dagur Kári

 

Meira

 

14.11.2005

Angela Shelton

Á Októberbíófest er sýnd heimildamyndin Leitin að Angelu Shelton. Myndin segir frá því þegar kvikmyndagerðarkonan Angela Shelton leitaði uppi alnöfnur sínar um gjörvöll Bandaríkin og ræddi við þær. Markmið hennar var að varpa ljósi á líf þessara kvenna, gleði þeirra og sorgir, en hana óraði ekki fyrir því sem beið hennar. Myndin fékk fjölda verðlauna og kom af stað mikilli umræðu um ofbeldi gegn konum. Í framhaldi af því varð til fjöldahreyfing kvenna sem berst gegn ofbeldi í hennar nafni og sjálf er Angela nú í fullu starfi við að halda fyrirlestra, fylgja eftir fræðsluefni og setja inn efni á vefsíðu sem hún heldur úti fyrir þolendur ofbeldis. Angela Shelton er stödd hér á landi og ég hitti á dögunum þessa kjarkmiklu konu. Ég spurði hana fyrst hvers vegna hún ákvað að gera myndina Leitin að Angelu Shelton.

 

Meira

 

10.10.2005

Pawel Pawlikowski

Þýðing Guðna Tómassonar á viðtali við Pawel Pawlikowski meðan á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð hófst. Viðtalið var flutt í Víðsjá 4. október. 

 

Hér í Víðsjá í gær ræddi Sigríður Pétursdóttir um myndina Sumarást eða Summer of Love sem sýnd er á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.  Leikstjóri þeirrar myndar er Pawel Pawlikowski, sem fæddur er í Varsjá í Póllandi árið 1957 en hefur búið í Bretlandi frá árinu 1971. Pawlikowski er einnig í forsæti þeirra dómnefndar sem velja mun hina svokölluðu Uppgötvun ársins en nokkrar myndanna á hátíðinni keppa um þann heiður. Sigríður hitti Pawlikowski fyrir okkur hér í Víðsjá og hann rifjaði upp í fyrstu að hann hefði sem barn haft gaman að kvikmyndum á æskuárunum í Póllandi.

 

Meira

 


    Senda síðu