|
19.1.2007
|
|
|
|
|
|
Ilyena Vasilievna Mironov, betur þekkt sem leikkonan Helen Mirren, fæddist 26. júlí árið 1945 og verður því 62 ára á þessu ári. Það má með sanni segja að hún sé á hátindi fræðar sinnar og hefur að undanförnu toppað flestar aðar leikkonur í tilnefningum til eftirsóttra verðlauna. Hún er eina konan sem hefur leikið bæði Elísabetu I og Elísabetu II Englandsdrottningar og ekki nóg með það heldur lék hún líka Charlotte, drottningu Georgs III í kvikmyndinni Brjálæði Georgs konungs frá 1994. Síðastliðið mánudagskvöld fékk hún Gullna hnöttinn fyrir að leika báðar Beturnar, bæði á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi. Áður hafði hún hlotið Emmy verðlaun, í febrúar eru það svo verðlaun bresku kvikmyndaakademíunnar, BAFTA, og líklegt þykir að hún fari líka heim með Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Drottningunni.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
22.4.2006
|
|
|
|
|
|
Stöllurnar Bibi Andersson og Harriet Andersson eru sænskar leikkonur sem hafa látið mikið að sér kveða í sænsku leikhús- og kvikmyndalífi í rúmlega hálfa öld. Þær voru á táningsaldri þegar þær byrjuðu og eru enn að leika. Báðar eru í hóp sem stundum er kallaður Bergman leikkonurnar, hinar eru Ingrid Thulin og Liv Ullman. Bibi og Harriet hafa ekki bara verið áberandi í kvikmyndum Bergmans heldur eiga þær það líka sameiginlegt að hafa verið ástkonur hans.
|
|
|
Bibi
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
21.9.2005
|
|
|
|
|
|
Skrifað fyrir bækling Bæjarbíós, vetrardagskrá 2005-2006
Kvikmyndastjörnur hafa fylgt leiknum kvikmyndum frá árdaga þeirra. Leikkonur og leikarar sem hafa orðið geysivinsæl og jafnvel dýrkuð af áhorfendum. Það sem kvikmyndastjörnur af báðum kynjum eiga sameiginlegt er útgeislun og sterk nærvera á hvíta tjaldinu. Þær stela gjarna senunni. Stjörnur eru ekki endilega fríðar og það kemur manni alltaf jafn mikið á óvart hvað þær eru oft lágvaxnar. Þó er algengara að kvikmyndastjörnur séu gullfallegar a.m.k. konurnar. Bæjarbíó sýnir þrjár myndir með stjörnupörum, Charade (vantar ísl. heiti) með Audrey Hepburn og Cary Grant, Woman of the Year (Kona ársins) með Katherine Hepburn og Spencer Tracy og Giant (Risinn) með Elizabeth Taylor og James Dean. Hér koma fróðleiksmolar um gyðjurnar þrjár.
|
|
|
Tracy og Hepburn
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
10.7.2005
|
|
|
|
|
|
Hann var táknmynd uppreisnargjarnrar æsku, vondi strákurinn, kæruleysið uppmálað með sígarettuna lafandi í munnvikinu. Með bauga undir döprum augum, gaf skít í allt. Hafði engu að tapa, keyrði eins og brjálæðingur. Í kvikmyndunum og í viðtölum sagði hann allt sem unglingar hugsuðu en þorðu ekki að segja á sjötta áratug síðustu aldar í íhaldssömum bandaríkjum. Þar sem úthverfalífið var draumurinn, vel straujaðir eiginmenn og konur með uppsett hár römmuð inn af húsum í pastellitunum og hvítmáluðu trégrindverki. Það lak af honum kynþokkinn, leikhæfileikarnir voru umdeildir en ekki töffaraímyndin. Enginn hefur enn komist með tærnar þar sem hann hafði hælana.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|
19.10.2004
|
|
|
|
|
|
Freyr Eyjólfsson flutti pistil um hinn eina sanna Peter Sellers á Morgunvaktinni 19. október. Hann getið þið lesið hér fyrir neðan.
Innan tíðar verður sýnd hér á landi kvikmynd um leikarann Peter Sellers, sem óumdeilanlega er einn mesti gamanleikari allra tíma, en vakti kannski ekki alltaf kátínu og gleði í einkalífi sínu eða í samstarfi við aðra.
|
|
|
|
|
|
Meira
|
|
|
|