Síða 1 af 41  |   <<     >>


23.2.2007

Óskarsverðlaunaspá

Óskarsverðlaunin verða afhent í 79. skipti í nótt. Spáði í spilin fyrir Morgunvakt á föstudagsmorgni og svo er uppgjör á mánudagsmorgni. Hér koma nokkrir punktar. Alþjóðlegri en oft áður. Mikið um breskar og mexíkóskar myndir og leikara. Þetta er ekki síst áberandi í leikkvennaflokkunum.

 

Meira

 

16.2.2007

Völundarhús Pans

El Laberinto del Fauno eða Völundarhús Pans er eftir Guillermo del Toro frá Mexíkó (f.1964). Myndin gerist árið 1944. Borgarastyrjöld geysar á Spáni. Ófelía litla flytur út í sveit með ófrískri og veikri móður sinni. Þar bíður þeirra stjúpfaðir Ófelíu, harðstjórinn, sadistinn og höfuðsmaðurinn sem leikinn er af hinum magnaða Sergi López sem sumir muna eftir t.d. úr Harry, vinur í raun og Dirty Pretty Things. Ófelía verður vitni að miklum hörmungum en flýr þá inn í undurfagra ævintýraveröld. Myndin er dimm og sorgleg með ótrúlegu samspili fegurðar og ljótleika.

 

Meira

 

16.2.2007

Babel

Babel, fléttumynd eftir höfund Amores Perros og 21 gramm, hinn mexíkóska Alejandro González Iñárritu (f.1963), eftir handriti Guillermo Arriaga. Babel hefur farið sigurför um heiminn og ekki að undra. Frábær mynd í alla staði. Eins og í fyrri myndum hans sem ég nefndi eru sterkar sögur vel fléttaðar saman og flakkað í tíma og rúmi. Að þessu sinni er þó sögusviðið alþjóðlegt og farið er milli Mexíkó, Bandaríkjanna, Japan og Marokkó.

 

Meira

 

16.2.2007

Children of Men

Children of Men, Mannanna börn. Leikstjóri er Alfonso Cuarón frá Mexíkó (f.1961), en hann er bæði þekktur fyrir myndir sem hann gerir í heimalandinu og í Bandaríkjunum. Hann gerði árið 1995 Litlu prinsessuna, ósköp sæta mynd sem fáir þekkja. Árið 1998 gerði hann Great Expectations eftir bók Dickens og hún fékk misjafna dóma. Þó var alveg greinilegt að þarna var á ferðinni leikstjóri sem yrði spennandi að fylgjast með. Skemmtilegar pælingar í útliti og myndatöku, meðal annars er græni liturinn notaður nánast í hverjum ramma. Fyrsta myndin sem vakti á honum alþjóðlega athygli og lof var Y tu mamá también, Og mamma þín líka, frá árinu 2001.

 

Meira

 

22.1.2007

Foreldrar

Kvikmyndin Börn eftir Ragnar Bragason var sýnd í haust og hlaut góðar viðtökur hérlendis sem erlendis. Tekin í svart-hvítu, unnin með annari aðferð en áður þekktist hér á landi og umfjöllunarefnið langt frá því að vera léttmeti. Gat brugðið til beggja vona, en reyndist frábær mynd og athyglisverðasta frumsköpun í íslenskri kvikmyndagerð undanfarin ár. Börn var fyrri myndin í tvíleik eftir Ragnar sem hann gerir í samstarfi við leikhópinn Vesturport. Í þessum tvíleik skoðar hann samskipti foreldra og barna og hlutverk þeirra. Síðan ég sá Börn hef ég beðið seinni hluta tvíleiksins með eftirvæntingu. Um helgina rann svo stóra stundin upp, frumsýning Foreldra. Myndin er sjálfstætt framhald svo maður þarf ekki að vera búinn að sjá Börn, en það spillti sannarlega ekki fyrir því saman mynda Börn og Foreldrar sterka heild sem ég spái verðskuldaðri athygli út fyrir landsteinana.

 

Meira

 


    Senda síðu