12.10.2002

Þannig varð Kvika til

Kvika.net sameinar bæði áhugamál og atvinnu undirritaðrar. Ég er með B.A. próf á sviði kvikmyndafræði og frásagnartækni í nýjum miðlum frá Högskolan i Skövde. Sem betur fer hef ég haft tækifæri til að nýta menntunina þó nokkuð í vinnu við fjölmiðla og við fyrirlestrahald.

Ég tók eftir því fyrir nokkru síðan að það voru að safnast upp pistlar hjá mér um kvikmyndir. Einhver vina minna komst í safnið og hafði á orði að það væri synd með útvarps- og sjónvarpsefni að það hyrfi svo fljótt út í tómið og fáir gætu notið þess. Sá hinn sami lét það fylgja að ég sem væri nú alltaf að vinna við vefi annarra ætti að drífa mig í að setja upp eigin vef með þessu efni. Mér fannst hugmyndin góð og ég sá að með því myndi ég koma mér upp hinum ágætasta gagnabanka og ekki væri verra ef fleiri gætu notið hans. Ég hef gaman af að teikna og ákvað að sjá um útlitshönnunina sjálf en naut aðstoðar Tónaflóðs við forritun og uppsetningu á vefnum.

Bekkjarsystkini mín sem hafa lokið sama námi og ég vinna mörg hver við listræna ráðgjöf, ýmist við kvikmyndir, sjónvarp eða margmiðlun. Glöggt er gestsaugað segir gamalt máltæki og það er hlutverk listræns ráðgjafa eða stjórnanda að vera þetta glögga auga. Það verður engin minni listamaður þó að hann hlusti á utanaðkomandi álit, Almodovar myndi aldrei gera kvikmynd án þess að hafa listrænan ráðgjafa, hans “art director” hefur undanfarin ár verið hinn hæfileikaríki Antxon Gomez.

Ég hef ekki fengið tækifæri til að vinna við listræna ráðgjöf við kvikmyndir en hef að undanförnu getað nýtt menntunina með ráðgjöf við útlitshönnun á vefjum Tónaflóðs. Selma Hrönn Maríudóttir er góður útlitshönnuður með langa reynslu. Hún hefur metnað til að fá samstarf við listrænan ráðgjafa til að vinna með henni hugmyndavinnu áður en hún hefst handa og koma svo með tillögur um breytingar á seinni stigum hönnunarinnar. Samstarfið er skemmtilegt og gengur vel en stundum getur verið erfitt að sameina listræna tilfinningu og hefðir, óskir viðskiptavina og koma fyrir borðum og lógóum sem eru til staðar fyrir. Sem dæmi um vefi sem við höfum unnið saman að á þennan hátt má nefna www.kryddogkaviar.is, www.veislan.is og www.folkogfasteignir.is. Stundum verður hlutverk manns að reyna að gera það sem fyrir er betra og dæmi um vef sem búið var að hanna en við Selma vorum fengnar til að gera endurbætur á er vefur Mosfellsbæjar, www.mos.is. Hann hefði eflaust orðið öðruvísi ef við hefðum hannað hann frá grunni en það er gaman að fá að glíma við svona nokkuð líka. 

Lénið kvika.net er vistað á linux server hjá www.picture-peter.com  sem styður php og býður þess vegna upp á marga möguleika.  Vegna samstarfs við Tónaflóð sem er með öll sín kerfi í asp er uppsetning á www.kvika.net  óvenjuleg þar sem þessu tvennu er blandað saman.

Listrænn ráðgjafi minn við gerð vefsetursins var Alexander Briem, sonur minn, sem hefur unnið lengur við kvikmyndagagnrýni en mamman og hefur kjark til að segja alltaf eins og honum finnst. Takk Alexander!

Ferilskrá Sigríðar Pétursdóttur

 

Til baka

   Senda síðu