Síða 1 af 15  |   <<     >>


22.2.2007

Sköllótta söngkonan

Vinnufélagar mínir fara oft á kostum. Í morgunkaffinu kom Viðar Eggertsson með skýringu á skalla Britney Spears. Skýringu sem okkur finnst ansi líkleg þó fjölmiðlar um gjörvallan heim hafi ekki áttað sig á þessu. Britney ræfillinn er líka svo misskilin og við á Rás 1 svo klár. Nei, Britney var ekki að herma eftir Magna og ekki að lýsa stuðningi sínum við lag Dr. Gunna í Evrovision. Henni finnst Bubbi heldur ekkert flottur. Nei, skalli dömunnar er tileinkaður annarri Sköllóttri söngkonu sem varð fimmtug 16. febrúar síðast liðinn.

Sú fimmtuga

Meira





14.2.2007

Í þá daga

Erfitt er að horfa upp á þjáningu þeirra sem hafa þolað andlegt og líkamlegt ofbeldi á hinum ýmsu stofnunum á sjöunda og áttunda áratugnum. Þeir eiga alla mína samúð. Þegar umfjöllunin um Breiðuvík byrjaði hugsaði ég með mér að líklega hefði víða verið pottur brotinn því tíðarandinn var þannig. Sjálf var ég unglingur á þessum tíma en þar sem ég var seinþroska og ansi langt frá þvi að vera til vandræða sem unglingur varð ég aldrei fyrir kennaraprikinu né heldur niðurlægingu fyrir framan hópinn. Hins vegar varð ég vitni að ýmsu sem nú til dags yrði flokkað sem bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi gagnvart unglingum.

Meira





5.2.2007

Vatnsbera-afmæli

HANN Á AFMÆLI Í DAG, HANN Á AFMÆLI Í DAG... syng ég á hverjum degi í þessari viku. Mennirnir í lífi mínu, eiginmaður og sonur eiga báðir afmæli og auk þess fjögur börn í kringum mig. Sem sagt tími til að gleðjast.

Meira





3.2.2007

Plögg og Moggaforsíða

Ég er hljómsveitarmamma, plöggari og power-rótari... ég er líka magadansmær og uppfinningamaður! Hvaða titil mynduð þið setja í símaskrána???   Sem sé, þarf að koma að meira Soundspell plöggi. Bloggið mitt er að breytast í fréttabréf hljómsveitarninnar. Á eftir plögginu fylgja svo nokkrir molar um það sem mér hefur dottið í hug að blogga um að undanförnu.

Meira





20.1.2007

Tvö ný Soundspell lög

Soundspell fréttir: Drengirnir eru búnir að taka upp tvö lög sem verða á tilvonandi hljómplötu. Hún ber titilinn An Ode To The Umbrella og mun að öllu forfallalausu koma út þegar vorlaukarnir blómstra. Nýju lögin heita Pound og Her Favorite Colour Is Blue og þeir sem það vilja geta hlustað á þau á síðu Soundspell

www.myspace.com/spellthesound

Meira





20.1.2007

Gláparinn

Njörður eða glápari, það er málið þessa dagana. Í dag var ég gláparinn í Lesbók Moggans. Ekki kaupa allir það mæta blað svo ég leyfi mér að setja meðmæli mín með kvikmynd hér á bloggið líka. Annars var ég að horfa á Júróvision lögin og get svarið að mér leið illa. Ekki bara andlega heldur sver ég að líkami minn brást við með mikilli ógleði. Ég hlýt að vera masókisti. Ekki meira um það, en hér kemur það sem Gláparinn hafði að segja.

Meira





5.1.2007

Njörðurinn Sigríður

Í gær var ég kvikmyndanjörður Fréttablaðsins. Ég skemmti mér konunglega við að svara spurningunum sem fyrir mig voru lagðar. Reyndar svo vel að ég sprengdi rammann. Blaðamaðurinn varð því að stytta viðtalið svolítið. Ég ætla að herma eftir Önnu.is og birta viðtalið óstytt hér á síðunni minni. Hún gerði það þegar hún var kvikmyndanjörðurinn fyrir nokkru síðan.

Meira





31.12.2006

Gleðilegt ár!

Kæru vinir og bloggvinir! Árið 2006 er næstum liðið, aðeins nokkrar klukkustundir eftir. Fyrir utan nokkurn heilsubrest hjá fjölskyldumeðlimum var árið okkur gott. Hér á eftir fer örlítill annáll um bras fjölskyldunnar á árinu sem er að líða. Ég nenni ekki að fjalla um fréttir, hneykslismál, náttúruhamfarir eða stjórnmál. Ó, nei, það sem hér fer á eftir er meira en lítið sjálfhverft. Annállinn er í aldursröð, aldurinn í sviga fyrir aftan nafn að hætti gulu pressunnar J

Meira





21.12.2006

Helgileikur og uhu lím

Ég held að almættið hafi ákveðið að þakka niður í hinni markaðssettu og nýungagjörnu þjóð sem auglýst hefur að svart sé jólaliturinn í ár með því að gefa okkur svört jól. Ekki hvít jól eða einu sinni rauð jól, heldur miklu frekar bikasvört jól með roki og rigningu í svartasta skammdeginu. Gott á okkur! Aldrei framar svartar jólakúlur takk!

Meira





8.12.2006

Bakað með æskuvinkonum

Um síðustu helgi var ég í árlegum piparkökubakstri með æskuvinkonunum frá Húsavík. Við höfum bakað saman piparkökur í byrjun aðventu í ein 16 ár. Börnin okkar hafa alltaf bakað með okkur, nú eru þau reyndar sum komin yfir tvítugt og mörg á unglingsaldri. Svo ekki er eins mikið af ungviði að baka með okkur núna og oft áður. Ég hlakka alltaf jafn mikið til. Á hverju ári finn ég tilhlökkun og gleði hellast yfir mig þegar ég horfi á öll þessi fallegu og iðnu andlit hamast við baksturinn. Jólatónlist hljómar frá geislaspilaranum og svo eru bakaðar piparkökur, alltaf notuð sama uppskriftin. Allt verður að vera eins frá ári til árs. Þannig er það yfirleitt með hefðir.

Meira






   Senda síðu