Umsjónarmaður verkefnisins er Ásta Svavarsdóttir fræðimaður á Orðabók Háskólans og einn af aðstandendum verkefnisins ,,Tilbrigði í setningagerð". Hún hefur skipulagt verkefnið ásamt því að leiðbeina mér og vera mér innan handar um hvaðeina sem snertir framkvæmd rannsóknarinnar bæði faglega og í sambandi við hagnýt úrlausnarefni.