
Transcriber 1.5Samtölin voru skráð nákvæmlega í Transcriber umritunarforritinu, en það er franskt forrit sem hægt er að hlaða niður ókeypis. Forritið tengir saman hljóð og texta þannig að hægt sé að leita í gögnunum. Hugbúnaðurinn geymir gögnin á XML formi þannig að hægt sé að meðhöndla þau með ýmiss konar leitar- og greiningarforritum.
Myndin hér til hliðar sýnir forritið og ef smellt er á myndina stækkar hún.
Við skráningu á samtölunum var ákveðið að fylgja vinnureglu ÍS-TAL varðandi skráningu talaðs máls til þess að samræmi sé í skráningu gagna talaðs máls.
Að lokinni skráningu hafa öll samtölin verið vistuð á DVD geisladisk sem geymir bæði textaskrá og hljóðskrá ásamt öðrum gögnum. Frágangur á upplýsingum tengdum upptökum og vinnu við skráningu voru sett saman, þ.e. skráningarblöð varðandi aldur málhafa, lengd upptöku, menntun málhafa og staðsetningu voru sett saman í töflu til að auðvelda úrlestur gagnanna. Allir málhafar gáfu samþykki sitt fyrir því að gögnin yrðu notuð til áframhaldandi rannsókna á íslenskri tungu og eru þessi samtöl því ómetanleg fyrir framtíðarrannsóknir.