Rannsóknin

Tekin voru upp 8 samtöl í heildina. Það voru fjórir aðalmálhafar á aldrinum 18-22 ára og var jafnt kynjahlutfall þ.e.a.s. tvær stelpur og tveir strákar. Tekin voru upp samtöl málhafa annars vegar við jafnaldra og hins vegar við foreldra og ömmu, alls átta samtöl.

Hvert samtal var um 22-30 mín. að lengd. Samtölin voru tekin upp á mini-diska og síðan flutt yfir í tölvu jafnóðum. Afrit af öllum samtölum eru komin á geisladiska til öryggis og er umsjónarmaður verkefnis komin með þau samtöl auk samtalanna á mini-diskunum. Einnig er umsjónarmaður kominn með samþykkisyfirlýsingu frá öllum málhöfum og munu þær vera geymdar hjá honum. Afrit af samtölum sem hafa verið skráðar í Transcriber umritunarforritinu eru einnig hjá umsjónarmanni og hafa þau verið vistuð á minnislykli og í tölvu umsjónarmanns.

Til að auðvelda skráningu í Transcriber gerði ég lista transcriber.doc yfir það hvernig ég skráði gögnin í forritið.

Þátttakendur

Ákveðið var að taka upp óformleg samtöl sem væru þó stýrð af fyrirfram ákveðnu umræðuefni. Viðmælendur áttu að þekkjast vel til að samtölin yrðu eðlileg og óhindruð. Samtöl voru tekin upp í heimahúsum viðmælenda þ.e. aðalmálhafa. Sett var upp tafla með upplýsingum um þátttakendur til að auðvelda yfirsýn yfir upptökur og þátttakendur.