Verkefnið ,,Hvernig tala ungir Íslendingar í byrjun 21. aldar?” fólst í því að hljóðrita tal ungs fólks, annars vegar við jafnaldra og hins vegar við sér eldra fólk til að hægt væri að fá samanburð á málnotkun þess eftir viðmælendum og aðstæðum. Slíku efni hefur ekki verið safnað áður. Hljóðritanir eru stafrænar og samtölin voru skráð nákvæmlega í umritunarforriti (Transcriber) sem tengir saman hljóð og texta þannig að hægt sé að leita í gögnunum. Forritið sér einnig um að kóða gögnin (xml-kóðun) þannig að hægt sé að meðhöndla þau með ýmiss konar leitar- og greiningarforritum. Auk þess að hljóðrita tal og skrá í Transcriber er efnið gert aðgengilegt á netinu og einnig geymt hjá Orðabók Háskólans fyrir aðra til afnota við framtíðarrannsóknir.
Um framkvæmd verkefnisins sá Sigrún María Ammendrup en umsjónarmaður er Ásta Svavarsdóttir fræðimaður á Orðabók Háskólans.