Til að byrja með var vinnulýsing gerð til að fara eftir áður en samtölin voru tekin upp.
Næsta verkefni var að finna út umræðuefni til að fá þátttakendur til að ræða frjálst saman. Umræðuefnið varð að höfða til allra kynslóða og kveikja áhuga þeirra sem ræddu saman. Eins þurfti efnið að vera það opið að aðalþátttakandi gæti rætt um það tvisvar sinnum í hálftíma.
Umræðuefnið var eftirfarandi: Þið fóruð út í búð og ákváðuð að kaupa ykkur lottómiða saman. Þið ákváðuð í búðinni að ef þið mynduð vinna á miðann þá mynduð þið ferðast fyrir peningana. Þið vinnið svo milljón á miðann, hvað nú?
Fólk var látið vita að verið væri að taka upp eðlilegar samræður fólks svo það væri alveg í lagi að fara aðeins út fyrir efnið, það er að fólk þyrfti ekki að binda sig við þetta umræðuefni.
Umræðuefnið var mjög gott, flestir gátu talað mjög lengi um efnið. Einstöku sinnum þurfti að skjóta inn áfangastað eða einhverju álíka og héldu þá samræður áfram.
Næsta skref var að útbúa samþykkisyfirlýsingu, lýsingu á rannsókninni og svo eyðublöð til að fylla út upplýsingar um þátttakendur. Samtölin voru algjörlega nafnlaus og verða samþykkisyfirlýsingar ekki geymdar á sama stað og upplýsingar um hverja hljóðritun. Þær upplýsingar sem skráðar voru voru aldur, kyn, búseta og samband þátttakenda, eins um upptökurnar sjálfar, þ.e. dagsetningu, stað, lengd og svo ef einhverjar athugasemdir voru sem reyndust ekki vera.